Prófíll

  • Nafn: Rósa Björk Ágústsdóttir
  • Atvinna: Nemi, móðir og unnusta.

Auglýsing

Tenglar

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

ÉG setti myndir í albúmið

06. ágúst 2007 klukkan 23:11
Rósa Björk Ágústsdóttir
Engin athugasemd

Já ég er hér enn;)

06. ágúst 2007 klukkan 22:26
Það hefur verið nóg að gera í sumar"fríinu", því það kallast seint frí að vera á fullu allan daginn. Við fórum vestur á Bíldó í lok júni, þar var hátíð Bíldudals grænar baunir, veðrið var æði, það var glampandi sól allan tíman. Við eyddum heilli viku í góðu yfirlæti hjá Nonna bróðir og Guðbjörgu og dætrum þeirra. Við ákváðum svo að fara í útilegu í júlí fórum á Flúðir og komumst að því að það er ekkert sniðugt að fara með nýfættbarn í útilegu þ.e.a.s. jú alltí lagi að vera með svona lítið barn en að vera með eitt 2, og annað 4 það var ansi erfitt,, því það þurfti að hugsa um þau öll. Við erum mikið búin að vera uppí bústað og hefur það verið alveg frábært að geta verið þar um helgar og líka á virkum dögum, við höfum búið í ferðatösku s.l. 5 vikur en ætla ég eð taka uppúr henn og vonandi næ ég að minnka hrúguna í þvottahúsinu hjá mér í þessari viku ;) Leikskólinn byrjar á morgun;) ;) ;) Rútína, rútína og aftur rútína æði ág hlakka til. Þau eru búin að vera yndisleg og frek, falleg og óþekk, alltí bland. En það fer núna allt að róast og rútína kemst á lífið. Vonandi er einhver enn að lesa. 
Love Rósan
Commentið endilega.  
Rósa Björk Ágústsdóttir
2 athugasemdir

NÁÐI ÖLLU

20. maí 2007 klukkan 15:38
Ég naíð prófunum, jibbi.Brosandi Ég fékk meira að segja 8 í meðaleinkun, og ég sem var ekki einusinni viss um að ná öllu, ég er greinilega algjör snilliHlæjandi. Það er allt mjög rólegt hérna í Bólstaðahlíð, krakkarnir leika sér úti í garði á hverjum degi eftir leikskóla og við sitjum í sólbaði og fylgjumst með þeim. Það er einhver undarleg tíska í gangi hér í Hlíðunum hjá ellilífeyrisþegum því allir eru með rauðar göngugrindur á hjólum og körfuBrosandi algjör snild, margir af körlunum eru þó með staf. Svo þegar þau labba hérna framhjá brosa þau til barnana og virðast alveg heilluð af þeim, Hákon fer allltaf og heilsar þeim og labbar með hinu megin við grindverkið. 
Haflína Maja er orðin mjög spennt að fá að sjá minnsta bróður sinn sem átti að koma í gær, hún veit að hann er sætasti bróðir í heimiKoss
Annars ætlum ég og Guðni að fara í bíó kl.17.30 á eftir, á ...... veit ekki hvaða myndSkömmustulegur maður verður nú að reyna að drepa tímann meðan við bíðum eftir 5 fjölskildumeðlimnum.
Love Rósa.   
Rósa Björk Ágústsdóttir
4 athugasemdir

Á mánaða fresti;)

12. maí 2007 klukkan 23:49

Já, jæja þetta er allt að koma, farin að blogga á mánaða fresti, það er ágætt er það ekki??  Núna er stutt í litla kútinn, kannski kemur hann í nótt hver veit, ég fæddist á kosninga nótt fyrir 29 árum síðan! Hann vill ef til vill halda í hefð. Það eru samt 7 dagar í settan dag sem er 19.maí. Prófin eru búin og fæ ég einkunnir 18.maí ég veit að ég náði 3 fögum af 5, ég er svoldið spennt að fá að vita hvort ég náði hinum. Ég læt ykkur vita ef ég hef náð þeim, annars ekki;) Guðni náði öllum sínum prófum sem er alveg frábært. 
Ég setti bumubumyndir af mér í albúmið, tékkið á þeim
;)
Annars er lítið að frétta verð í bandi síðar.
Love Rósa. 

Rósa Björk Ágústsdóttir
Engin athugasemd

Alveg að klúðra blogginu...

12. apríl 2007 klukkan 23:39
Jæja, betra er seint en aldrei,, ekki satt?????

Það er svo sem alveg nóg af fréttum sem ég gert sagt ykkur, við höfum fengið úthlutað nýrri  íbúð;) Við munum flytja í Bólstaðahlíð þann 24 apríl nk. og ég er ekkert smá spennt, því ég er komin með uppí kok á að keyra alla daga frá bryggjuhverfi og vestur í bæ á hverjum morgni og síðan aftur seinni partinn. Við munum spara tíma og peninga á þessum flutningum. Þessi flutningur er samt ekki alveg á besta tíma því guðni er á fullu í prófum og ég kasólétt, en hvað um það við eigum góða að sem munu(vonandi) hjálpa okkur.
Minnsta barninu líður vel og gengur meðgangan svo vel að ljósan sagði við mig síðast þegar ég kom að hún vildi óska að allar konur væru eins og ég þ.e.a.s með engin vandamál;) Svo af hinum börnunum er líka allt gott að frétta Hákon alltaf á hausnum og Haflína reytir af sér gullkornin á hverjum degi, eins og dag var allt einhvernvegin ekki alveg eins og hún vildi hafa það, og hún sagði við mig að "þetta er ekki besti dagurinn í öllu lífi mínu".
Svo fer ég í 2 skyndipróf í næstu viku NÁT103 og NÆR103 það verður stuð!!    'Eg má eiginlega ekkert vera að því að vera í skólanum því ég er svo spennt að fara að flytja og ég væri alveg til í að pakka niður frekar en að læra, en ég næ þessu alveg ef ég er ekkert að stressa mig. Jæja nóg í bil ég vona að einhver sé að fylgjast með.
Rósa beib
Rósa Björk Ágústsdóttir
1 athugasemd

Það er svo mikið að gera.

06. febrúar 2007 klukkan 23:11
Það er búið að vera svo mikið að gera hjá okkur hjónakornunum að við höfum rétt hisst í örfaár stundir á sólahring,  Guðni skilaði af sér verkefni í gærkvöldi kl.21.58 og þar með lauk þessari törn og vonast ég til að hann bjóði mér út að borða Gráðugureða að minnstakosti í videóglápGlottandi  .

Við náðum þó að púsla saman afmæli á sunnudaginn, þvílíkt og annað eins, barna afmæli eru einsog innrás (þið skiljið) maður situr 10 mín. eftir að síðasti gesturinn fór,horfir i kringum sig og skilur bara ekki hvað gerðist allt á hvolfi. Ég hef þó lært eitt ,,að skúra ALDREI fyrir barnaafmæli " og ég er mjög ´þakklát manneskjunni sem benti mér á þetta ,,trix" fyrir tveimur árum síðan.

Ég er á fullu að læra í skólanum og er svona að ná því að læra heima, sem innir mig á að ég þarf að lesa nokkrar bls. fyrir morgundaginn um erfðaefni, ég bíð því góða nótt.
Rósa Björk Ágústsdóttir
4 athugasemdir

Mamman, húsmóðirin og sjúkraliðaneminn hefur ákveðið að vera eins og hinir!!

30. janúar 2007 klukkan 06:18
Þetta er prufan, fyrsta blggfærslan. Ég hef á tilfinningunni að þetta sé að verka fyrst ég er að ná að skrifa eitthvað. Hugsið ykkur að fyrir ári eða svo kunni ég ekki á msn hahaha, ég gat þó opnað heimasíðu fyrir börnin á barnalandinu.  'Eg ætla að prufa að vista þetta og sjá hvað gerist.
Love Rósa.
Rósa Björk Ágústsdóttir
5 athugasemdir